Garðatorg 17, 210 Garðabær
96.000.000 Kr.
Fjölbýli/ Fjölbýlishús með lyftu
4 herb.
131 m2
96.000.000
Stofur
1
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
1991
Brunabótamat
58.010.000
Fasteignamat
86.500.000
Opið hús: 08. mars 2026 kl. 15:00 til 15:30.

Opið hús: Garðatorg 17, 210 Garðabær, Íbúð merkt: 01 02 04. Eignin verður sýnd sunnudaginn 8. mars 2026 milli kl. 15:00 og kl. 15:30.

Fasteignasalan Bær og Páll Guðjónsson kynna: Björt og rúmgóð fjögurra herbergja íbúð fyrir 60 ára og eldri á annarri hæð með sér inngangi af svölum, í snyrtilegu fjölbýlishúsi við Garðatorg 17, 210 Garðabæ. Búið er að setja upp lyftu milli hæða sem auðveldar aðgengi. Eignin er samkvæmt FMR skráð 104,8 fm ásamt 26,4 fm bílskúr, alls 131 fm. Um er að ræða frábærlega staðsetta íbúð í hjarta Garðabæjar þar sem heilsugæsla, lágvöruverslun, apótek og fl. ásamt margvíslegri annarri verslun og þjónustu er í göngufæri. Eignin á hlutdeild í góðum fullbúnum samkomusal í aðliggjandi húsi að Kirkjulundi 6-8. Eignin getur verið til afhendingar við kaupsamning.

Nánari lýsing:
Komið er inn í rúmgóða forstofu með skáp. Frá forstofu er komið inn í hol. Þrjú rúmgóð svefnherbergi, tvö með skápum. Rúmgott baðherbergi með ljósri innréttingu og sturtuklefa, tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Eldhús með eldri ljósri innréttingu á tvo vegu. Við hlið eldhúss er borðstofa / sólskáli. Rúmgóð og björt stofa með sólskála, útgengi frá stofu út á suður svalir. Á gólfum eignar er parket á holi, herbergjum, eldhúsi og stofu en flísar á baðherbergi og forstofu. Parket þarfnast endurnýjunar. Eigninni fylgir rúmlega 26 fm bílskúr með geymslu inn af. Um er að ræða bjarta og vel skipulagða eign á frábærum stað í Garðabæ. 
Nánari upplýsingar gefur Páll Guðjónsson lögg. fasteignasali í síma 699 4994 eða á netfangið [email protected]

 

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.