Vilborg G Hansen lgf s. 895-0303 og Fasteignasalan Bær kynna: LAUS FLJÓTT! 2ja herbergja íbúð á 7.hæð með miklu útsýni á þessum vinsæla stað í miðborg Reykjavíkur. Íbúðinni fylgir stæði í lokaðri bílageymslu. Lokaður garður er fyrir miðju húsanna. Í húsinu er umsjónarmaður.
Nánari upplýsingar og bókið skoðuna hjá Vilborgu G. Hansen, löggiltum fasteignasala s. 895 0303 eða á [email protected]ÍBÚÐ: Komið inn á forstofugang þar sem eru innfelldir skápar og þaðan er gengið inn á baðherbergi flísalagt í hólf og gólf m/glugga, sturtuklefa og innréttingu. Stofa með útgengi á vestur svalir með miklu útsýni. Eldhús með hvítri eldri innréttingu og tækjum. Lítill eldri ísskápur fylgir. Innaf eldhúsi er svefnherbergi með skápum. Eldra parket er á gólfum.
SAMEIGN/BÍLSKÝLI: Snyrtileg sameign og garður fyrir miðju húsanna. Í sameign er sér geymsla íbúðar innangengt frá bílageymslu og stutt frá inngangi. Þar er einnig sorpgeymsla, sameiginlegt þvottahús, þurrkherbergi og vagnageymsla. Sameign er öll snyrtileg og íbúðin með mynddyrasíma. Umsjónarmaður er í húsinu. Lokaður garður er fyrir miðju húsanna. Þakviðgerðir fóru fram árið 2024.
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Fasteignasalan Bær því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna.1. Stimpilgjöld af kaupsamningi - 0,8 % af heildarfasteignamati, lögaðilar 1,6%
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunnar. Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnanna.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu sbr. kauptilboð