Opið hús: 10. mars 2026 kl. 17:30 til 18:00.Opið hús: Hringbraut 83, 101 Reykjavík, Íbúð merkt: 01 02 01. Eignin verður sýnd þriðjudaginn 10. mars 2026 milli kl. 17:30 og kl. 18:00. Starfsmenn fasteignasölunnar taka á móti ykkur.
Fasteignasalan
BÆR,
Auður &
Ólafur kynna: rúmgóða og bjarta
5 herbergja íbúð á 2. hæð að
Hringbraut 83 ásamt
bílskúr, 101 Reykjavík.
- > Endursteinað hús
- > Stór eldhúsinnrétting
- > Tvö baðherbergi
- > Tvennar suðursvalir
- > Bílskúr er 46 fm og býður upp á möguleika
Nánari lýsing:
Sameiginlegur inngangur með 1. hæð.
Stigi upp á 2 hæð. Fatahengi á stigapallinum.
Komið inn í
hol, sem tengir saman öll rými íbúðarinnar, á hæðinni.
Eldhús: með rúmgóðri L-laga innréttingu og borðkrók.
Stofa: snýr að bakgarði. Hefur verið skipt upp og herbergi stúkað út úr stofunni. Auðvelt að breyta til baka. Svalir í suður.
Svefnherbergi: er bjart með hornglugga og fataskápum (stúkað úr stofu). Fataskáparnir eru lausir en mega fylgja.
Baðherbergi: klósett, handlaug & sturtuklefi. (Sýnt sem herbergi á teikningu.)
Stigi upp á rishæðina.
Herbergin eru 3 á rishæðinni: öll rúmgóð og eitt með súðarskápum. Hin tvö herbergin eru með góðum innbyggðum skápum. Svalir í suður.
Baðherbergi með baðkari og tengt fyrir þvottavél. Við hlið þvottavélatengis er einnig pláss fyrir þurrkara.
Holið á rishæðinni er með fataskáp.
Bílskúrinn er sérstæður með góða glugga inn að garðinum. Rafmagn og heitt vatn. Skúrinn er í dag frekar hrár en býður upp á mikla möguleika.
Sér geymsla á jarðhæðinni er köld.
Sameiginlegt þvottahús á jarðhæðinni.
Hægt að láta tengja fyrir rafbíl.
Lóðin er sameiginleg. Búið er að byggja pall og sameiginleg húsgögn á pallinum eru nýtt af íbúum hússins.
Lóðin er leigulóð. Lóðarleigusamningur er frá 2013 til 75 ára.
Eignin er skráð þannig hjá
HMS: íbúð á hæð merkt 01-02-01, birt stærð er 125,1 fm byggt 1939. Íbúðarhluti á 2 hæð er skráð 75,5 fm og rishæð skráð 45,3 fm. Sér geymsla í kjallara er skráð 4,3 fm. Bílskúrinn er skráður 46 fm byggður 1950. Heildarstærð er 171,1 fm.
Samkvæmt upplýsingum frá fyrri eiganda:
Húsið og íbúðin eru talsvert endurnýjuð m.a. var húsið múrviðgert og endursteinað árið 2017 og á sama tíma var járn á þaki yfirfarið, viðgert og málað. Árið 2016 voru gluggar yfirfarnir og viðgerðir þar sem þurfti og settir nýjir álistar. Það ár var líka sett nýtt dren í kringum húsið að frátaldri suðurhlið þess en það var ekki talið þurfa. Frárennslislagnir eru endurnýjaðar út í nýjan brunn á lóðinni.
Gólfhiti var lagður í íbúðina árið 2013 og þá voru einnig vatnslagnir endurnýjaðar og forhitari settur á neysluvatnið. Búið er að draga nýtt rafmagn í alla íbúðina og skipta um alla rofa og tengla. Einnig er rafmagnstafla í sameign endurnýjuð. Allar innihurðir eru nýlegar. Stutt í þjónustu, skóla og sundlaug.
Allar nánari upplýsingar veita:
Auður Sigr Kristinsdóttir löggiltur fasteignasali s 824-7772 & tölvupóstur
[email protected] Ólafur Tr Thors löggiltur fasteignasali s 666-8-777 & tölvupóstur
[email protected]Auður & Ólafur eru í Félagi Fasteignasala.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% hjá einstaklingum og 1,6% hjá lögaðilum af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu, sbr. kauptilboð
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Fasteignasalan Bær því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þörf er á.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og til húsfélags, þegar um það er að ræða. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.