Skógarás 4, 110 Reykjavík (Árbær)
69.500.000 Kr.
Fjölbýli/ Fjölbýlishús með sameiginlegum inngangi.
3 herb.
86 m2
69.500.000
Stofur
1
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Inngangur
Sameig.
Byggingaár
1986
Brunabótamat
42.850.000
Fasteignamat
67.000.000
Opið hús: 03. mars 2026 kl. 17:00 til 17:30.

Opið hús: Skógarás 4, 110 Reykjavík, Íbúð merkt: 02 02 02. Eignin verður sýnd þriðjudaginn 3. mars 2026 milli kl. 17:00 og kl. 17:30.

Fasteignasalan Bær og Páll Guðjónsson kynna í einkasölu:  Björt og rúmgóð þriggja herbergja tæplega 87 fm.  íbúð á rólegum og góðum stað í Selásnum, 110 Reykjavík. Íbúðin er á annarri hæð merkt 0202 í sex íbúða fjölbýli. Rúmgóðar svalir með útsýni. Geymsla / þvottahús er innan íbúðar.  Stutt er í alla helstu þjónustu og Elliðaárdalinn, eitt vinsælasta útivistarsvæði Reykvíkinga. Sameiginlegur garður er umhverfis húsið. Húsið er klætt með viðhaldslítilli ál- og steníklæðningu.

Nánari lýsing:
Komið er inn frá sameign inn í anddyri með fatahengi. Björt stofa með stórum gluggum og útgengi á rúmgóðar suðvestur svalir með fallegu útsýni.
Eldhús með Snyrtilegri ljósri L-laga innréttingu, tengt fyrir uppþvottavél. Inn af eldhúsi er rúmgott þvottahús / geymsla með hvítri innréttingu, skolvaski og geymsluhillum. Baðherbergi með snyrtilegri innréttingu og háum skáp, upphengdu salerni og baðkari með sturtu. Tvö svefnherbergi, stærra herbergið með stórum fataskáp, minna herbergið er með einföldum fataskáp. Á gólfum íbúðar er ljóst harðparket á stofu, herbergjum og eldhúsi en flísar á baði. Í sameigin er vagna- og hjólageymsla. Húsinu fylgir sameiginlegur garður. 

Stutt er í alla helstu þjónustu og má þar nefna verslanir, leik- og grunnskóla eins og Heiðaborg, Rauðaborg og Selásskóla ásamt Árbæjarlaug og íþróttasvæði Fylkis.
Elliðaárdalurinn, ein helsta útivistarperla Reykjavíkur, og umhverfi við Rauðavatn og Elliðavatn eru í göngufæri. 

Nánari upplýsingar gefur Páll Guðjónsson lögg. fasteignasali í síma 699 4994 eða á netfangið [email protected]

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 1,0% af höfuðstól skuldabréfs.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.

 

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.