Guðbergur s 8936001 og fasteignasalan Bær kynna: Einbýlishús á einni hæð 190fm með 4 svefnherbergjum, stofu, sólstofu, eldhúsi, baðherbergi, þvottaherbergi og bílskúr á 1200 fm lóð.
Frábær staðsettning og stutt í náttúruna.Nánari lýsing: Anddyri með flísum á gólfi og fatahengi.
Svefnherbergin eru 4 og þrjú með fataskáp, parket á gólfum nema einu sem er með máluðu gólfi.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf, upphengt salerni, handklæðaofn og innrétting.
Eldhús er nýlegt og með miklu skápaplássi, innbyggður: frystir, ísskápur, uppþvottavél, tveir bökunar ofnar, spanhelluborð og vifta.
Þvottaherbergi með flísalögðu gólfi, tengi fyrir tvær þvottavélar og þurkara og
útgengi út í garð.
Stofa með flísum á gólfi.
Sólskáli er í beinu framhaldi af stofu með parket á gólfi, arni og útgengi út á verönd og þaðan út í garð.
Rúmgóður bílskúr og inn af honum er geymsla.
Teikning af húsinu sem er í myndum er ekki með rétta herbergjaskipan eins og hún er í dag.
Viðhald: Skipt um allt gler nema í opnanlegum fögum á vestur hlið, allir gluggar úr herbergjum og stofu út í garð nýlegir. Allar raflagnir nýjar, ný tafla, rofar og tenglar. Þakjárn og pappi var endurnýjað 2019.Húsið lítur vel út en skipta þarf um klæðningu á bílskúr inn í garð.Stór lóð, góð staðsettning og fallegar gönguleiðir í 100m fjarlægð.Allar nánari upplýsingar veitir Guðbergur Guðbergsson löggiltur fasteignasali s 8936001. [email protected]