Sólheimar 23, 104 Reykjavík (Vogar)
82.000.000 Kr.
Fjölbýli/ Fjölbýlishús með lyftu
4 herb.
109 m2
82.000.000
Stofur
2
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Inngangur
Sameig.
Byggingaár
1961
Brunabótamat
49.450.000
Fasteignamat
72.350.000

Fasteignasalan Bær og Páll Guðjónsson lögg. fasteignasali kynna: Falleg og rúmgóð 3-4 herbergja endaíbúð á sjöttu hæð í góðu lyftuhúsi við Sólheima 23, 104 Reykjavík. Eignin var endurnýjuð fyrir 8 árum. Skipt var út eldhúsinnréttingu, gólfefnum, fataskápum, hurðum og baðherbergi endurnýjað, svölum lokað með svalalokun. Frábært útsýni á þrjá vegu. Rúmgott sameiginlegt bílastæði með 8 hleðslustöðvum fyrir rafmagnsbíla. Snyrtileg sameign. Í húsinu er starfandi húsvörður. 

Nánari upplýsingar:
Komið er inn frá sameign inn í litla forstofu með fataskáp. Eldhús með eikarinnréttingu, tengt fyrir uppþvottavél. Rúmgóður gangur / hol með litlum geymsluskáp. Baðherbergi með ljósri innréttingu, upphengt salerni, sturta með öryggisgleri, flísalagt í hólf og gólf. Hjónaherbergi með glugga á tvo vegu ásamt rúmgóðum fataskápum. Þvottahús / geymsla er innan íbúðar með hillum. Barnaherbergi með skáp. Björt og rúmgóð stofa og borðstofa með útgengi út á yfirbyggðar suður svalir. Hægt er að stúka borðstofu af fyrir þriðja svefnherbergið. Á gólfum íbúðar er harðparket á eldhúsi, gangi, stofu, borðstofu og svefnherbergjum en flísar á forstofu og baðherbergi. Á svalagólfi eru snyrtilegar viðarflísar. Í sameign er sér geymsla íbúðar ásamt sameiginlegri hjóla- og vagnageymslu, þvottahúsi og þurrkherbergi. Tvær lyftur eru í sameign. Ágætt aðgengi fyrir fatlaða. Stutt er í leik-, grunn- og framhaldsskóla og helstu þjónustu eins og verslunarkjarna í Skeifunni og Glæsibæ. Göngufæri er í útivistar- og íþróttasvæði í Laugardal.
 
Húseignin hefur fengið gott viðhald í gegnum árin:
2017 - Gluggar endurnýjaðir.
2022 - Skipt var um skólp og dren.
2024 - Bílastæði endurbætt. 
2024 - Smærri lyftan endurnýjuð.
2025 - Anddyri lagfært og endurbætt.

Nánari upplýsingar gefur Páll Guðjónsson í síma: 699 4994 eða á netfangið [email protected]


 

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.