Fasteignasalan
BÆR,
Auður &
Ólafur kynna: tvö hús sem í dag eru notuð sem
skólastofur. Kaupandi skal flytja húsin burtu.
Húsin eru byggð tilbúin til flutnings með stálbitum undir.
Nánari lýsing:
Komið er inn í
anddyri með fatasnögum og bekkjum á veggjum á þrjá vegu. Úr anddyri er komið í stóran sal, skólastofuna sjálfa.
Skólastofan er björt með góðum gluggum. Inn af því miðrými, við hlið anddyris, eru
inntaks- og ræstiherbergi ásamt þar við hlið
snyrtingu með gólfstandandi klósetti og vaski.
Inntaks- og ræstiherbergi er með inntökum og rafmagnstöflu ásamt stálvaski.
Húsin virðast í góðu ástandi að innan sem utan og seljast saman eða sitt i hvoru lagi. Uppgefið verð er fyrir eitt hús.
Húsin hafa verið tengd við rafmagn og hita.
Á gólfi í öllum rýmum er gólfdúkur.
Myndir teknar með dróna af þaki fylgja sölugögnum.
Bæði húsin eru gerð eftir sömu teikningu. Í öðru húsinu hefur glugga verið breytt í hurð á gafli á móti inngöngudyrum.
Eignirnar eru skráðar þannig hjá HMS: skólastofur 2 x 79,2 fm byggt 2002. Matshlutar 070101 & 080101.
Hægt er að nýta húsin sem skólastofur, sumarhús, gestahús eða atvinnuhúsnæði. Athugið húsin verða seld til flutnings.
Að sögn seljanda eru húsin byggð hjá SG á Selfossi.
Allar nánari upplýsingar veita:
Auður Sigr Kristinsdóttir s 824-7772 & tölvupóstur
[email protected] Ólafur Tr Thors s 666-8-777 & tölvupóstur
[email protected]Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% hjá einstaklingum og 1,6% hjá lögaðilum af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu, sbr. kauptilboð
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Fasteignasalan Bær því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þörf er á.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og til húsfélags, þegar um það er að ræða. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.