Opið hús: 19. júní 2025 kl. 18:00 til 18:30.Opið hús verður haldið Fimtudaginn 19 júní 2025 að Klettagötu 15 Laugarási kl 18:00-18:30
Guðbergur og fasteignasalan Bær kynna: Glæsilegan sumarbústað 96,9 fm ásamt Bílskúr/gestahús 34 fm á fallegum stað við Laugarás Biskupstungum með hitaveitu.Nánari lýsing: Hús og lóð líta vel út og bústaður ber þess merki að vera vel viðhaldinn.
Anddyri með náttúruflísum á gólfi og fataskáp.
Baðherbergi með náttúru flísum á gólfi, sturtuklefi,upphengt klósett, tengi fyrir þvottavél, innrétting og útgangur út í garð.
Sjónvarpshol er rúmgott og með parket á gólfi. Alrými sem er
: stofa/borðstofa og
eldhús með innréttingu og eyju fullbúin tækjum. Úr stofu er útgengi
á stóran pall með
heitum pott og þaðan út í garð.
Svefnherbergin eru 2 og annað með fataskápum og útgengi á sólpall. Það var auka svefnherbergi þar sem borðstofan er í dag.
Rúmgóður bílskúr og inn af honum er gert ráð fyri
gestaherbergi en hefur ekki verið klárað.
Falleg hús, frábær staðsettning, frábært útsýni yfir Hvítá, Dýragarðurinn Slakki í göngufæri, verið er að byggja Laugarás lagoon sem á að opna í sumar sem er í göngufæri.Allar nánari upplýsingar veitir Guðbergur Guðbergsson löggiltur fasteignasali s 8936001 [email protected]