Opið hús: 16. júní 2025 kl. 17:30 til 18:00.Opið hús: Bakkastaðir 29, 112 Reykjavík. Eignin verður sýnd mánudaginn 16. júní 2025 milli kl. 17:30 og kl. 18:00.
Guðbergur og fasteignasalan Bær kynna: Fallegt og gott einbýlishús á einni hæð 175,3fm í enda á botnlangagötu.Nánari lýsing: Snyrtilegt og fallegt hús með 3 svefnherbergjum, verönd, sólpalli og tvöföldum bílskúrAnddyri með flísum á gólfi og góðum fataskáp. Úr
anddyri er gengið inn í
bílskúr sem er með flísum á gólfi,
tveimur innkeyrslu hurðum og hillum á vegg.
Rúmgott eldhús með viðar innréttingu, gott skápa pláss, keramic helluborð, bökunarofn, tengi fyrir uppþvottavél, vifta og borðkrókur.
Stofa með eikarparket á gólfi og útgengi út á
verönd og þaðan í garð.
Svefnherbergin eru 3 öll með fataskápum og eikarparket á gólfum.
Baðherbergi með flísalögðu gólfi, baðkar, sturtuklefi og stór innrétting.
Rúmgott þvottaherbergi með flísum á gólfi, skolvask og tengi fyrir þvottavél og þurkara. Úr þvottaherbergi er útgengi í garð og þar er einnig lúga í geymsluloft.
Bílaplan er steypt og með hita, Garður snyrtilegur, verönd í suður og sólpallur í vestur.Húsið stendur í enda botnlanga og er opið svæði vestur af húsinu.
Viðhald: Þakkantur endurnýjaður 2018-2019, Þak málað 2009, Pallur fyrir framan hús smíðaður 2004-2005, bílaplan steypt 2004-2005, parket sett á húsið 2002, Hús málað að innan 2002,
Lagfærð hurð út í garð ásamt gluggum 2018-2025,Gluggalystar yfirfarnir 2018, Örveirumæling 2018 (vegna raka frá hurð út í garð), borið á bílaplan síðast 2024(hefur verið gert á tveggjaára fresti),lagfærð við bílskúrshurðir innkeyrsla 2024Allar nánari upplýsingar veitir Guðbergur Guðbergsson löggiltur fasteignasali s 8936001 [email protected]