512 3400 Hafa Samband
Fjölbýli/ Fjölbýlishús með lyftu
4 herb.
157 m²
139.900.000 Kr
Tegund:
Fjölbýli/ Fjölbýlishús með lyftu
Stærð:
157 fm
Herbergi:
4
Stofur:
1
Svefnherbergi:
3
Baðherbergi:
0
Inngangur:
Sameig.
Byggingaár:
2022
Lyfta:
Brunabótamat:
0
Fasteignamat:
9.310.000
Lýsing


Sýnum samdægurs:
Fasteignasalan Bær kynnir: Stórglæsileg 131,4 fm. fjögurra herbergja íbúð á fjórðu og efstu hæð með suður svölum og 46,9 fm. sér þakgarði í suður og vestur, ásamt 26,4 fm. bílskúr, alls 157,8 fm. Sér bílastæði merkt B106. Eignin afhendist fullbúin tækjum í eldhúsi, harðparketi gólfum en flísar á votrýmum, innfelldri lýsingu, kubbaljósum ásamt veggljósum í herbergjum. Afhending eftir samkomulagi.
Nánari lýsing eignar:

Rúmgóð forstofa með fataskáp. Eldhúsinnrétting frá GKS. Raftæki í eldhúsi eru frá AEG, kæliskápur með frysti, uppþvottavél, spanhelluborð, veggofn og combiofn. Eyjuháfur yfir helluborði. Eldhúsvaskur og blöndunartæki eru svört. Í baðherbergi er upphengt salerni. Innréttingar eru hvítar, spegill með baklýsingu, handklæðaofn, sturta með föstu gleri. Flísalagt í hólf og gólf.  Þvottahús er innan íbúðar með stálvaski og fráleggsborði. Hvítir PAX fataskápar eru í forstofu og svefnherbergjum. Gólfefni íbúðar eru ljóst harðparket en gegnheilar flísar á votrýmum. Hurðir og karmar eru harðplasteikarhurðir. Eigninni fylgir sér geymsla í sameign. Sérmerkt bílastæði í lokuðu bílastæðahúsi, en þar er einnig uppsett grunnkerfi fyrir rafbílahleðslu. Ljósleiðari er dreginn í tengikassa hverrar íbúðar. Afhending eignar eftir samkomulagi.

Smyrilshlíð 14 er 5 hæða lyftuhús með 14 íbúðum, auk kjallara með sérgeymslum og bílastæðum og bílskúrum þar sem við á. Aðalhönnuður er KRark, Kristinn Ragnarsson arkitekt. Innangengt er úr bílageymslu inn í stigagang. Á jarðhæð er aðalinngangur hússins, póstkassar og mynddyrasímar eru í anddyri. Úr anddyri er gengið inn í stigahús að lyftu ásamt sérgeymslum íbúða. Húsið afhendist fullbúið að utan, ásamt lóð og bílastæði. Þak er steinsteypt með ásoðnum tjörupappa og einangrað með þrýstieinangrun (Roofmate), pallar og gras er á þakgörðum en grjót á öðrum svæðum. Svalir eru staðsteyptar, svalahandrið úr álprófílum og gleri og svalagólf með viðarstiklum. Húsið er fulleinangrað að utan og klætt með álklæðningu. Gluggar og hurðir eru úr timbri, málaðir að innan en áklæddir að utan. Bílastæði eru malbikuð og hitalögn er í gagnstéttum. Sorpgeymslur eru niðurfelldar í gangstéttar við götu.

Heimasíða hlidarendi.is

Nánari upplýsingar gefur Páll Guðjónsson lögg. fasteignasali í síma 699 4994 eða á netfangið [email protected]

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt (en þó breytilegt) 1,0% af höfuðstól skuldabréfs.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr. kauptilboð.

Tengiliður

Hefurðu áhuga vita meira um þessa eign?

Skilaboð hafa verið send.
Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.