*FALLEGT RAÐHÚS Á EINNI HÆÐ MEÐ BÍLSKÚR*
Fasteignasalan Bær og Eggert Ólafsson, löggiltur fasteignasali, s: 893 1819, kynna fallegt 4ra-5 herbergja raðhús á einni hæð, ásamt sérstæðum bílskúr. Eignin er samtals 151,9 fm. Í næsta nágrenni er leikskóli, grunnskóli, framhaldsskóli, verslanir, sundlaug og önnur þjónusta.
Nánari upplýsingar veitir:
Eggert Ólafsson, löggiltur fasteignasali, í síma 893 1819, eggert@fasteignasalan.is
Viltu frítt verðmat fyrir sölu? Get ég aðstoðað þig við sölu eða leigu íbúðar þinnar?
Nánari lýsing:Komið er inn í
forstofu með fataskáp og er
gestasnyrting þar inn af. Inn af forstofu er
hol með þakglugga og hátt til lofts. Í
stofu/ borðstofu er hátt til lofts og útgengt á sólpall í garði. Í björtu
eldhúsi er hvít innrétting með beykiköntum, marmari er á milli efri og neðri skápa, eyja með háf yfir spanhellum, innbyggður ísskápur og borðkrókur. Inn af eldhúsi er
þvottaherbergi með útgengt í garð. Inn af þvottaherbergi er
geymsla og þar inn af er
saunaklefi.
Svefnherbergishol.
Hjónaherbergi er með fallegum fataskáp.
Tvö barnaherbergi og er annað þeirra með fataskáp. Í
baðherbergi er gólfhiti, falleg innrétting, baðkar, sturtuklefi með mósaíklögðum veggjum, handklæðaofn, upphengt salerni, flísar í hólf og gólf og grenipanell í lofti. Parket er á gólfum, nema á baðherbergi, forstofu og gestasnyrtingu þar sem eru flísar, marmari á eldhúsgólfi og málað gólf á þvottaherbergi og geymslu.
Bílskúr: Með sjálfvirkum hurðaopnara, rafmagni, heitu og köldu vatni, hillum og epoxy á gólfi.
Annað: Skv. Fasteignaskrá Íslands er íbúð 127,3 fm. og bílskúr 24,6 fm., eða samtals 151,9 fm. Hvít klæðning er víða í loftum. Skipulagi hefur verið breytt frá teikningu.
Skoðunarskylda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Fasteignasalan Bær því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,4 til 0,8% hjá einstaklingum og 1,6% hjá lögaðilum af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu, sbr. kauptilboð.